Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507634854.69

    Viðmótshönnun
    VIÐM4VÞ08(BA)
    1
    Viðmótshönnun
    Vefþróun
    Samþykkt af skóla
    4
    8
    BA
    Í þessum áfanga er haldið áfram að skoða notendaviðmót og hönnun fyrir skjái. Kafað verður dýpra í hönnun fyrir snjalltæki sem og annan skyldan hugbúnað á sviði vefþróunar. Lögð er áhersla á að nemendur rannsaki nýjustu strauma og stefnur í viðmótshönnun. Nemendur læra undirbúning og rannsóknarvinnu í aðdraganda hönnunarfasa og hvernig hugmynd verður að hannaðri stafrænni vöru. Kafað verður dýpra í aðferðir við þarfagreiningu, rannsóknir og samskipti við notendur. Nemendur vinna þarfagreiningu, skilgreina notendur og kynna sér þarfir þeirra. Nemendur hjálpast að við að undirbúa og framkvæma notendaprófanir og draga lærdóm af þeim. Nemendur fá góða þjálfun í að hanna fyrir ýmsar stærðir af skjáum, bæði í hóp og sem einstaklingar. Kvikun í viðmótshönnun er skoðuð og tól rannsökuð sem styðja kvikun í hönnunarfasa. Lögð er áhersla á að nemendur kynni vinnu sína og læri að gagnrýna á uppbyggilegan hátt.
    Áfangar fyrstu annar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stöðlum/hefðum í viðmótshönnun vefsíðna og hugbúnaðar.
    • helstu viðmóts-hlutum/mynstrum á vefnum.
    • notendaupplifun og tilfinningalegum áhrifum ólíkra viðmóta.
    • mikilvægi og helstu aðferðafræði þarfagreiningar.
    • viðmótshönnun fyrir snjalltæki og annan hugbúnað á sviði vefþróunar
    • kvikun í hönnunarfasa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • grófhanna og skjala viðmótshönnun fyrir mismunandi stærðir skjáa
    • velja skilvirkustu viðmótshlutina fyrir hvert viðfangsefni.
    • setja sig í spor notenda og skilja hagsmuni þeirra.
    • hanna með kvikun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina þarfir og markmið væntanlegra notenda.
    • kynna eigin tillögur að notendaviðmóti fyrir viðskiptavini og eigin teymi.
    • undirbúa og framkvæma einfaldar notendaprófanir.
    • hanna fyrir mismunandi stærðir af skjáum
    • skila af sér hönnun með kvikun
    Námsmat er með fjölbreyttum hætti og byggir meðal annars á símati á vinnu nemanda, mati á úrlausnum og afurðum, skriflegum og verklegum prófum og munnlegum og skriflegum greinagerðum. Verkefnin eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni. Kynningar einstaklinga og hópa á verkefnum á ýmsum stigum í vinnslu þeirra eru einnig hluti af námsmati. Nemandi skal tileinka sér gagnrýna hugsun á eigin verk og því er sjálfsmat einn þáttur af námsmati í viðmótsforritun.