bókfærsla, dagbók, fyrsti áfangi, grunnatriði bókfærslu, inngangur að bókfærslu, uppgjör
Samþykkt af skóla
2
5
Í áfanganum er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók og aðalbók og öðlist skilning á bókhaldshringrásinni. Þeir öðlist hæfni til að gera uppgjör og setja fram efnahags- og rekstrarreikning. Nemendur fá innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendur þekki tilgang bókhalds.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds.
bókhaldshringrásinni.
dagbókarfærslum.
aðalbókarfærslum.
rekstrarreikningi.
efnahagsreikningi.
viðskiptamannabók.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa einfaldar dagbókarfærslur.
stilla upp prófjöfnuði.
gera upp virðisaukaskatt og nota uppgjörsgögn þar að lútandi.
gera upp í efnahagsreikning og rekstrarreikning
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis og afrita í viðskiptamannabók samkvæmt skuldunauta- og lánadrottnafærslum í dagbókinni sem er metið með verklegum æfingum og skriflegu prófi.
færa niðurstöður dagbókar í aðalbók og gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil sem er metið með verklegum æfingum og skriflegu prófi.
gera lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum, svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og sé fær um að setja upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna. Þetta er metið með verklegum æfingum og skriflegu prófi.