Í áfanganum er fjallað um menningarumhverfi samtímans ásamt því að skoða mismunandi stefnur og strauma bæði fyrr og nú. Fjallað er um listgildi samtímans og listkerfi fyrri tíma. Nemendur skoða hvað er list og með hvaða hætti hlutir öðlast merkingu sem list. Heimspekingar og kenningar þeirra varðandi fagurfræði og listir eru kynntar til sögunnar.
Nemendur eru kynntir fyrir fjölbreyttum birtingarmyndum lista og menninga. Áhersla er lögð á þverfagleika og tilraunavinnu, þar sem unnið er með ólík efni og miðla. Nemendur vinna verkefni tengd umfjöllunarefnum og undirbúa kynningar, sjálfstætt eða í hópum. Nemendur fá tkifæri til að fást við efni áfangans með aðferðum sjónlistar og leiklistar. Í áfanganum kynnast nemendur jafnframt aðferðum til að skrá og halda utan um eigin hugmyndir. Stórt verkefni er í áfanganum og byggir það á ferli rannsóknar, framkvæmdar, sköpunar, túlkunar og greiningar í samhengi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki og mikilvægi listar í menningarlegu samhengi
hugtökum sem notuð eru til að lýsa áhrifamiklum stefnum og straumum tengdum listum og menningu
listgildum samtímans og flokkunarkerfi lista fyrri tíma
kenningum nokkurra heimspekinga um fagurfræði og listir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota hugtök lista og menningar í umræðum og skriflegum verkefnum
nota aðferðir sjón- og leiklistar í að auka skilning á listum og menningu
koma auga á list og menningu í umhverfinu
skrásetja og halda utan um eigin hugmyndir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leita leiða til að örva sköpunarhæfni
njóta lista og menningar
vinna verkefni um listir og menningu með fjölbreyttum aðferðum
auka skilning á mikilvægi lista og menningar
Byggir á ástundun nemenda og virkni í tímum sem og verkefnum sem unnin eru yfir önnina.