Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507723103.87

    Alþjóðahagfræði
    HAGF3AL05
    1
    hagfræði
    Alþjóðahagfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Alþjóðahagfræði. Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti og alþjóðlega samvinnu, þar á meðal skipulag heimsviðskipta og samspil afla í því. Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir á vörur og þjónustu. Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum. Alþjóðlegar stofnanir og samtök eru kynnt og áhrif þeirra á íslensk efnahagsmál (Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar). Til umfjöllunar eru einkenni fjölþjóðafyrirtækja og alþjóðleg gjaldeyrisviðskipti, gjaldeyrismarkaðir, samningar um fríverslun, viðskipti við lönd utan EES, viðskipti milli ríkra þjóða og fátækra, algjörir og hlutfallslegir yfirburðir í milliríkjaviðskiptum.
    HAGF2RH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meginkenningum í alþjóðlegri hagstjórn
    • samsetningu heimsviðskipta
    • áhrifum alþjóðasamtaka og bandalaga á efnahag Íslands
    • þýðingu útflutnings og innflutnings fyrir þjóðarhag
    • hlutverki alþjóðlegs peningakerfis og bankakerfis
    • mikilvægi utanríkisviðskipta og gengisþróunar
    • hvernig reikna má viðskiptakjör
    • stöðu Íslands í heimsviðskiptaumhverfi
    • samspili alþjóðlegra stofnana og aðila
    • áhrifum tolla á innflutning
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna
    • skilgreina viðskiptakjör, greiðslujöfnuð, afgang eða halla
    • útskýra þýðingu alþjóðlegrar fjárfestingar
    • skilja hvernig alþjóðleg efnahagsmál þróast
    • sjá áhrif ESB á efnahagsmál Íslands
    • lýsa heildarstraumum í utanríkisviðskiptum
    • greina alþjóðlegan peningamarkað og vaxtakjör
    • greina áhrif viðskiptakjara á verðbólgu og atvinnustig
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna með meginatriði í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar, skilgreina stöðu og horfur Íslands skv. gögnum, t.d. þjóðhagsreikningum, ennfremur að greina hvernig hið alþjóðlega bankakerfi virkar og greina frá hlutverki inn- og útflutnings
    • skilja hvernig helstu hagstjórnartæki eru notuð hvað varðar utanríkisviðskipti og alþjóðasamskipti og vinna með innlenda og erlenda markaði fyrir vörur í heild og meta áhrif þeirra á ástand vinnumarkaðs
    • lesa úr línuritum og notfæra sér internetið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga
    Leiðsagnarmat