Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507806848.07

    Starfsþjálfun 2
    STAÞ2SR20(AV)
    26
    Starfsþjálfun
    starfsþjálfun í rafvirkjun
    Samþykkt af skóla
    2
    20
    AV
    Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti annast tengingar á lág og smáspennulögnum. Nemandi geti með mælitækjum fundið bilanir í raflögnum. Nemandi á að fá grunnþjálfun í vinnu við viðgerðir og uppsetningu á mismunandi gerðum raflagna-, öryggis- og stýrikerfa.
    STAÞ2SR20
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggiskröfum og öryggi á vinnustað
    • vali á búnaði til nota í raflögnum
    • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða og vandvirkni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla og beita handverkfærum og mælitækjum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
    • leggja og tengja raflagnir á fagmannlegan hátt
    • lesa teikningar og áætla magntölur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja rafbúnað í allar almennar lágspennu og smáspennuraflagnir.
    • annast uppsetningu og frágang allra almennra raflagna, stýringa og smáspennukerfa eftir raflagnateikningum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.