Helstu kenningar og hugtök um notendamiðaða viðmótshönnun verða kynnt. Saga viðmótshönnunar í tölvugeiranum frá Xerox Park til Apple og fram á okkar tíma verður reifuð. Notandinn verður skoðaður með hliðsjón af sálrænum, tilfinningalegum, vitsmunalegum og líkamlegum eiginleikum hans.
Áhrif notendaviðmóts á nýtingu hugbúnaðar og veflausna verður skoðuð. Einnig verður skoðað hvernig slök viðmót geta valdið mistökum, neikvæðum tilfinningum og jafnvel höfnun. Rannsakað verður hvaða notendaviðmót leynast í daglegu umhverfi okkar, bæði sýnileg og ósýnileg. Ennfremur verður rannsakað hvernig þau hafa orðið til og hvaða lærdóm megi draga af þeim í vefhönnun og forritun. Farið verður í aðferðafræði notendamiðaðrar hönnunar og mikilvægi endurtekinna notendaprófana.
Stúdentspróf eða sambærilegt
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu kenningum og hugtökum í notendamiðaðri viðmótshönnun.
sögu viðmótshönnunar sem greinar.
grundvallarkenningum í viðmótshönnun og HCI.
notendamiðaðri hönnun.
grunnreglum notendaprófana.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera notendapróf.
greina mismunandi birtingarmyndir notendaviðmóta.
meta gæði mismunandi notendaviðmóta á rökstuddan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina augljósa galla í notendaviðmótum og forðast þá við hönnun og forritun einfaldra notendaviðmóta.
leggja til betrumbætur á notendaviðmótum með rökstuðningi.
afla sér, sjálfstætt, meiri þekkingar um viðfangsefnið.
undirbúa og framkvæma notendaprófanir og draga marktækan lærdóm af niðurstöðum próana
Námsmat er með fjölbreyttum hætti og byggir meðal annars á símati á vinnu nemanda, mati á úrlausnum og afurðum, skriflegum og verklegum prófum og munnlegum og skriflegum greinagerðum. Verkefnin eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni. Kynningar einstaklinga og hópa á verkefnum á ýmsum stigum í vinnslu þeirra eru einnig hluti af námsmati. Nemandi skal tileinka sér gagnrýna hugsun á eigin verk og því er sjálfsmat einn þáttur af námsmati í viðmótsforritun.