Lögð er áhersla á að nemandi geti unnið sjálfstætt. Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti annast tengingar á honum. Hann geti notað mælitæki og rökhugsun við bilanaleit á rafbúnaði, mótorum og stýringum og gert við þær. Nemandi geti veitt viðskiptavinum ráðgjöf um val og staðsetningu rafbúnaðar bæði lágspennu og smáspennu. Nemandi á geta unnið sjálfstætt við viðgerðir og uppsetningu á mismunandi gerðum raflagna-, öryggis- og stýrikerfa.
Starfsþjálfun 3
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sérákvæðum varðandi raflagnir í einstökum rýmum
notkun mælitækja við bilanaleit
tengingu tölvunetkerfa
mótorum og mótorstýringum
tengingu margskonar rafstýri- og loftstýrikerfa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ganga tryggilega frá raflögnum í einstökum rýmum, miðað við aðstæður
vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum
efnistaka verk og vinna samkvæmt verkteikningu
leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar
annast viðgerðir og bilanagreiningu lagna og búnaðar
lesa teikningar og áætla magntölur
leiðbeina viðskiptavinum með faglegum hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja búnað og töfluskápa í allar almennar lágspennu og smáspennuraflagnir
geta staðsett rafdreifiskápa að teknu tilliti til bestu lagnaleiða
annast bilanaleit og viðgerðir á raflögnum og raftækjum
sjá um uppsetningu lagna og búnaðar eftir raflagnateikningum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.