Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist færni í undirstöðuatriðum enskrar málfræði, séu færir um að tjá sig um einfalda hluti bæði munnlega og skriflega, skilji daglegt mál og séu undir það búnir að fara á almennan áfanga á 1. þrepi í ensku (ENSK1LO05). Til þess þurfa nemendur meðal annars að öðlast nokkuð breiðan, hagnýtan og virkan orðaforða. Áhersla verður lögð á að nemendur læri að nýta sér öll þau hjálpartæki sem í boði eru og þeim gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína. Unnið er að því að efla sjálfstæði nemenda og þeir hvattir til að finna eigin leiðir til að ná árangri í náminu, því er áhersla lögð á að nemendur vinni sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og kynningum. Nemendur kynna sér hina margvíslegu menningarheima enskumælandi landa um heim allan með því að skoða mismunandi bókmenntaverk, en einnig með því að skoða fréttaefni líðandi stundar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu undirstöðuatriðum í enskri málfræði
þverfaglegum orðaforða til hagnýtra nota
almennum rauntextum og einföldum bókmenntaverkum
helstu menningarsvæðum þar sem enska er fyrsta mál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem hentar hverjum og einum
beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
lesa fjölbreyttar gerðir texta
að tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega
hlusta eftir upplýsingum, bæði í samtali sem og útvarps- eða sjónvarpsefni
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta orðaforða sinn á skýran og skilmerkilegan hátt í tal- og ritmáli
tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum
beita grundvallaratriðum enskrar málfræði í tal- og ritmáli
taka þátt í umræðum
sýna frumkvæði, sjálfstæði í upplýsingaöflun, úrvinnslu upplýsinga og uppsetningu verkefna sem tengjast áhugasviði
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.