Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507987900.81

    Stærðfræði með áherslu á fjármálalæsi
    STÆF1HB02
    5
    Stærðfræði
    heimilisbókhald tekjur og útgjöld, peningar
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er lögð áhersla á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
    • mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
    • virkni greiðslukorta
    • að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa á launaseðil eða tryggingaryfirlit
    • byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
    • standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur sett sig í
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • halda utan um eingin fjármál með eða án aðstoðar
    • átta sig á tengingunni milli réttinda og skylda
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.