Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507988133.54

    Stærðfræði með áherslu á peninga
    STÆF1PE02
    3
    Stærðfræði
    peningar, verðgildi og grunnaðferðirnar fjórar
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Í áfanganum er lögð áhersla á peninga og gildi þeirra. Unnin verður mismunandi verkefnavinna, farið verður í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn verður nýttur, notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • íslenskum peningum
    • gildi og meðferð peninga
    • að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • borgað og/eða tekið við viðeigandi peningarupphæðum
    • þekkja íslenska peninga
    • nýta sér og eða vinna með peninga í víðu samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýtt sér peninga í athöfum daglegs lífs
    • framkvæmt greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli
    • nýtt sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
    • áttað sig á því hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.