Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507990579.8

    Stærðfræði með áherslu á talnagildi
    STÆF1TN02
    6
    Stærðfræði
    tölur og númer
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Í áfanganum er unnið með tölur og gildi þeirra með fjölbreyttum nálgunum. Það verður meðal annars gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, í gegnum veraldarvefinn, notaðir verða tilboðsbæklinga og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvar og hvenær talnagildi kemur við sögu á daglegu lífi
    • tölum og reikniaðgerðum
    • forgangsröðun aðgerða
    • algengum stærðfræðitáknum
    • gildi talna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur
    • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
    • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér tölulegar upplýsingar
    • vinna með tölur
    • nýtt sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
    • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.