Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507996974.98

    Samfélagsfræði - nærsamfélagið
    FÉLA1NÆ02
    17
    félagsfræði
    Nærumhverfi
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Unnið verður með Norðurland í víðu samhengi þar sem skoðaðir verða nokkrir sameiginlegir þættir sveitafélaganna á Norðurlandi ásamt því að skoða hvað gerir þau ólík. Skoðað verður gróðurfar og dýralíf á svæðinu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • á sínu bæjarfélagi
    • nöfnum bæjarfélaga á Norðurlandi
    • fjölda íbúa á hverjum stað
    • áhugaverðum stöðum á Norðurlandi
    • einkenni dýralífs og gróðurfars á svæðinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
    • nefna og aðgreina bæjarfélög á Norðurlandi
    • leita sér upplýsinga á mismunandi hátt
    • þekkja ýmis dýr og plöntur á svæðinu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tala um og/eða ferðast um Norðurland
    • taka eftir ólíkum viðfangsefnum
    • greina á milli aðal- og aukaatriða
    • hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
    • lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
    • tjá eigin skoðanir
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.