Stafsetningaráfangi þar sem einnig er lögð áherslu á tjáningu í rituðu máli. Nemendur verða æfðir í notkun hjálpargagna. Nemendur æfist í ritun skapandi verka. Einnig munu þeir æfast í að lesa yfir eigin verk, gagnrýna og taka gagnrýni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einkennum íslensks máls sem nýtast við ritun
helstu stafsetningareglum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka við gagnrýni á eigin verk og vinna úr henni
nýta handbækur og aðrar bjargir við ritun
stafsetja á íslensku
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
nýta ritbjargir á árangursríkan hátt
geta skrifað texta sem er að mestu villulaus
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.