Vinnustaðanám fer fram í eldhúsi heilbrigðisstofnana.
Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf matartækna. Í upphafi tímabils setur nemendi sér fagleg markmið í vinnustaðanámið. Kennari, leiðbeinandi og yfirmaður bera sameiginlega ábyrgð á vinnustaðanáminu.
Í áfanganum fá nemendur þjálfun í að matreiða almennt fæði og allar helstu gerðir af sérfæði sem þörf er fyrir á heilbrigðisstofnunum og fjallað er um í áfanganum: Sérfæði bóklegt SFBÓ3SB04. Nemendur læra að matreiða og framreiða allar máltíðir dagsins, bæði heitar og kaldar.
VÞVS2SF10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnuskipulagi fyrir eigin vinnu og annarra í deildarskiptu eldhúsi eða stærra eldhúsi
verklýsingum fyrir störf í eldhúsinu
undirbúningi og grunnmatreiðslu og vinna að eftir skipulagi vinnustaðar
að undirbúa og matreiða helstu gerðir sérfæðis, s.s. grænmetisfæði, ofnæmis- og óþolsfæði
að taka þátt í og skipuleggja skömmtun á mat og fara eftir skammtstærðum staðarins
að vinna við að matreiða almennt fæði og sérfæði vinnustaðar
að setja upp fyrstu skrefin að innra eftirliti fyrir vinnustað
að taka þátt í og undirbúa almenna matseðlagerð , fæði með breyttri áferð og sérfæði viðkomandi staðar
að fara eftir mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit, HACCP
að vinna að gæða- og úrbótarverkefnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
undirbúa vinnuskipulag - verklýsingar
matreiða allt almennt fæði
matreiða sérfæði vinnustaðarins
skammta mat eftir skömmtunarformi vinnustaðar
vinna að úrbóta og gæðaverkefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera ábyrgð á verkferlum og skipulagi við gerð almenns- og sérfæðis á heibrigðisstofnun
vinna eftir ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit, HACCP