Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508687967.21

    Trésmíði með áherslu á sköpun
    TRÉS1TI02
    11
    trésmíði
    smíða úr timbri
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Nemendur vinna allir sama verkefnið undir handleiðslu kennara. Nemendur læra að meðhöndla og beita helstu tækjum og vélum sem notuð eru í trésmíði. Nemendur temji sér vönduð vinnubrögð, góða umgengni um vinnustað og læri að gæta fyllsta öryggis.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umgengni við tæki sem notuð eru í trésmíði og notkun þeirra
    • mismunandi viðartegundum
    • geri sér grein fyrir hættum og slysum sem röng meðferð tækja getur valdið
    • mikilvægi vandvirkni við smíðar
    • mikilvægi frágangs og tiltektar á vinnurýminu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita og nota tæki sem notuð eru í trésmíði á réttan og öruggan hátt
    • að velja efni sem hentar viðfangsefninu
    • laga til og sópa vinnurýmið
    • nota öryggishífar og búnað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • forðast slys vegna notkunar véla
    • vanda sig við vinnu
    • halda vinnusvæðinu hreinu og snyrtilegu
    • nota ávallt persónuhlífar og öryggibúnað sem til er ætlast
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.