Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508757159.17

    Matreiðsla á framhaldsskólabraut
    MATR1MA03
    15
    matreiðsla
    Matreiðsla almenn
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    FB
    Markmið áfangans er að nemandi kynnist og þjálfist í helstu vinnureglum við að matbúa einfaldan heimilismat. Farið er yfir grunnreglur um vinnuaðferðir, hollustuhætti og hreinlæti, vélar og tæki. Nemandi lærir að setja saman matseðil/máltíð.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu matreiðsluaðferðum
    • kröfum um hreinlæti í eldhúsi
    • helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi
    • hráefni, næringargildi og hollustu
    • kröfum um viðeigandi fatnað persónulegt hreinlæti í eldhúsi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja uppskriftum og leiðbeiningum
    • tjá sig um og lýsa aðferðum, og eiginleikum rétta
    • viðhafa persónulegt hreinlæti og almenna kurteisi
    • nota áhöld, vélar og tæki í eldhúsi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja og greina viðeigandi hráefni og matreiðsluaðferðir í uppskriftum
    • velja viðeigandi áhöld og tæki eftir því sem við á
    • halda sjálfum sér og vinnuplássi sínu hreinu
    • draga áliktanir af mistökum við matreiðslu og greina lausnir
    Taka þátt í að skipuleggja og vinna við litlar veislur undir leiðsögn