Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda. Nemendur vinna jafnframt með nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis og leita eftir nýrri nálgun á hefðbundnum aðferðum. Þeir vinna verkefni er lúta að framsetningu og hönnun kaldra rétta. Verkefnið felur í sér framkvæmda- og tímaáætlun og uppskriftir. Verkefni eru lögð fyrir í FFMF3Ib05
VMAT2IB12, námssamningur í matreiðlsu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sígildum köldum réttum
grugghreinsun og hlaupgerð
ólíkri framsettningu
réttum verkferlum kaldra rétta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hanna og setja fram kalda rétti á matarfötum
hanna og setja upp köld hlaðborð
hanna og gera kalda smárétti
útbúa matseðla og matreitt þá fyrir mismunandi markhópa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita almennum og sérhæfðum aðferðum við úrlausnir verkefna
tileinka sér nýjungar og nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis
geta unnið heildstætt að verkefnum í matreiðslu eftir viðurkenndum matreiðsluaðferðum
þróa eigin hugmyndir í matargerð.
beita faglegu innsæi og kunnáttu til að meta fyrirfram niðurstöður verkefna.
velja hráefni með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum og verðmætasköpun.
sýna fram á faglega víðsýni, sköpunarmátt og frumkvæði.