Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Heilsuefling, bættur lífsstíll
Bættur lífsstíll
Áfanginn leggur áherslu á bættan lífsstíl.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi fjölbreytileika í þjálfun
- ólíkum þjálfunaraðferðum
- ólíkum þörfum einstaklinga
- uppbyggingu þols og styrks miðað við ólík markmið.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að leiðbeina samnemendum sínum í ólíkum þjálfunaraðferðum
- að búa til og setja upp skipulagðan tímaseðil
- að nýta sér fjölbreyttar aðferðir í líkams- og heilsurækt til að stuðla að bættum lífsstíl
- að nýta sér þekkingu úr HEI1A05 til að mæla og meta árangur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- að taka þátt í og/eða sjá um kennslu og þjálfun í fjölbreyttri líkams- og heilsurækt.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.