Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatriði brauð- og kökugerðar, baksturs og skreytinga. Áhersla er lögð á grundvallaratriði í bakstri. Nemendur læra að vinna eftir uppskriftum. Áhersla er lögð á persónulegt hreinlæti og nákvæmni í vinnubrögðum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að vinna eftir uppskriftum
helstu áhöldum, vélum og tækjum sem notuð eru við bakstur
leita að uppskriftum á netinu
þekkja eftirlitsreglur um hreinlæti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með gerdeig og baka úr því algengar brauðtegundir
vinna með rúllað deig
vinna með bæði þeyttar og hrærðar kökur
vinna með rafrænar sem og aðrar uppskriftir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
baka brauð og kökur
vinna sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum tengdum bakstri
ylla út gátlista eftir þrif, sem byggður er á viðurkenndu m eftirlitsreglum um hreinlæti