Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508850376.46

    Þjónað til borðs á framhaldsskólabraut
    ÞTBS1FR03(FB)
    1
    Þjónað til borðs
    Framreiðsla
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    FB
    Nemendur fá kynningu á starfi framreiðslumannsins og kynnast helstu vinnureglum við að leggja á borð og ganga frá. Farið er yfir grunnreglur um vinnuaðferðir, hreinlæti, borðsiði og umgengni, skipulag og samvinnu. Einnig farið í mikilvægi snyrtimennsku og kurteisi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • á almennum borðsiðum og kurteisi
    • reglum um hreinlæti
    • helstu áhöldum í veitingasal og notkunarmöguleikum þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna snyrtimennsku, fagmennsku og almenna kurteisi
    • leggja lín á borð og brjóta munnþurrkur
    • annast grunnborðlagningu
    • vinna einföld verkefni í framreiðslu
    • umgangast þau tæki og tól sem notuð eru í veitingasal
    • umgangast gesti og samstarfsfélaga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta unnið einföld grunnstörf í framreiðslu
    • skilja til hvers er ætlast af störfum við framreiðslu í veitingasal
    • vinna með helstu áhöld og tæki sem notuð eru í veitingasal
    • gæta að eigin hreinlæti og því hreinlæti sem kröfur eru gerðar skv. viðurkenndum hreinlætiskröfum
    • takast á við borðlagningu
    • temja sér heiðarleg og jákvæð samskipti
    Símat byggt á þátttöku í verklegum kennslustundum