Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508851691.49

    Tölvunotkun og upplýsingatækni á framhaldsskólabraut
    UPPL1FB05(FB)
    4
    tölvunotkun, upplýsingatækni
    B hluti, Upplýsingatækni, fornám
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FB
    Nemendur læra utanumhald námsefnis. Þeim er kennt að leysa verkefni með ólíkum forritum og setja það fram á fjölbreyttan og skapandi hátt. Kennd eru sjálfstæð vinnubrögð við ritvinnslu, notkun töflureikna og fjölbreyttra forrita til fyrirlestragerðar / skyggnukynninga. Ýmiss konar opinn hugbúnaður (open source) er kynntur og fyrstu skrefin eru stigin í hljóðvinnslu, myndvinnslu, kortagerð, gerð skoðanakannana og utanumhald upplýsinga. Farið er yfir hvað ber að varast við val á opnum hugbúnaði. Google umhverfið og möguleikar þess eru útskýrðir. Farið er yfir hegðun á samfélagsmiðlum og nemendur búa sér til eigið vörumerki (brand) á myndbandavef á borð við Youtube, Vimeo eða öðrum af sama toga. Forritun er lauslega kynnt.
    Engin
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölbreyttum aðferðum til að leysa verkefni í tölvum
    • ólíkum leiðum til framsetningar á efni
    • helstu forritum sem notuð eru í dag í námi
    • aðferðum til að finna viðeigandi opinn hugbúnað eftir viðfangsefni og hvað ber að varast við val á honum
    • hvað telst viðeigandi hegðun á internetinu / samfélagsmiðlum
    • möguleikum forritunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota forritin sem eru algengust í námi í framhaldsskóla
    • velja það / þau forrit / opinn hugbúnað sem hentar við lausn verkefna
    • setja efni fram á fjölbreyttan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota helstu forrit í námi til að leysa verkefni á faglegan hátt
    • skipuleggja og halda utan um eigið námsefni
    • leysa verkefni með viðeigandi forritum / opnum hugbúnaði til að ná fram fyrirfram ákveðinni framsetningu
    • prófa sig áfram í notkun á nýju forriti / opnum hugbúnaði til að geta nýtt sér það til gagns
    • prófa sig áfram í forritun
    • sýna ábyrga hegðun við framsetningu efnis á internetinu / samfélagsmiðlum á borð við myndbandavefi
    Símatsáfangi sem byggist á verkefnavinnu. Samhliða mati kennarans á verkefnum er leiðsagnarmat og sjálfsmat nemenda notað við heildarmat á áfanganum.