Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509450834.6

    Innréttingar
    INRE2SA06(AB)
    2
    Innréttingar
    Innréttingar SA
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    AB
    Í áfanganum læra nemendur um smíði innréttinga og innihurða með áherslu á spónlagningu, yfirborðsmeðferð og vélavinnslu plötuefnis. Lögð er áhersla á grunnatriði spónlagningar eins og plötu‐ og spónlagningarefni, áhöld, tæki, spónskurð, mynstrun og spónlímingu. Teknar eru fyrir samsetningar á plötuefni, smíðisfestingar, smíðistengi og uppsetning á innréttingum. Gerð er grein fyrir iðnaðarframleiðslu á innréttingum og innihurðum og mikilvægi þess að staðla vinnuferli og gerð, stærð og lögun framleiðsluvöru. Kennslan er aðallega verkleg og byggist á spónlagningu og plötusmíði þar sem nemendur fá þjálfun í að smíða skápa og innihurðir. Einnig læra nemendur grunnatriði í virkni og notkun tölvustýrðra trésmíðavéla með áherslu á sambandið milli tölvuteikninga (CAD), færsluskipana (CAM) og framleiðslu (CNC). Fjallað er um helstu hugtök sem tengjast notkun tölva í fram-leiðsluumhverfi, stafræna stýringu og forritun CNC-véla. Áherslan er á uppbyggingu CNC-forrita og hvernig hægt er að nota CAM-hugbúnað til að líkja eftir vinnslu á CNC-vél. Nemendur öðlast einnig þekkingu í öryggismálum varðandi umgengni við tölvustýrðar vélar.
    TRÉS1SA06BB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • smíði innréttinga, framleiðsluferli og notkun efna.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði við framleiðslu innréttinga.
    • viðarspæni og plastefnum sem notuð eru til spónlagningar.
    • plötuefni og límtré sem notað er í innréttingar og innihurðir.
    • notkun glers, málma og dúka í smíði innréttinga og innihurða.
    • samsetningaraðferðum, verkfærum og tækjum sem notuð eru í innréttinga‐ og innihurðasmíði.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði viðkomandi áhalda og véla.
    • mismunandi lími og öryggisreglum við meðferð þess.
    • mismunandi yfirborðsmeðferð á innréttingum og innihurðum.
    • helstu gerðum skápa- og innihurða.
    • NC- og CNC-stýringum.
    • tölvustýrðum vinnslustöðvum með 3 til 4 ásum.
    • grunnatriðum CNC-véla og virkni þeirra.
    • hegðun x-y-z ása.
    • núllpunktum fyrir vél og smíðahlut og tilvísunarpunktum með tilliti til uppsetningar á borði og vinnslu vélar.
    • algengustu ISO-kóðum.
    • öllum þáttum fræsiferils og samhengi þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíða, setja upp og meðhöndla innréttingar.
    • slípa og yfirborðsmeðhöndla spónlagða hluti í höndum og vélum.
    • staðsetja og taka úr fyrir lömum og skrám með tækjum og vélum.
    • nota vélar og verkfæri til innréttingasmíða.
    • smíða spjaldahurðir, skáphurðir, skúffur og aðra fylgihluti.
    • skera, klippa og líma saman spón með algengustu mynstrum.
    • kantlíma og spónleggja plötuefni með þvingum og í spónlagningarpressu.
    • meðhöndla skaðleg efni við framleiðslu innréttinga.
    • Leiðrétta fræsiferli með tilliti til uppsetningar á verkfæri og fræsilínu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja framleiðsluferli.
    • velja viðeigandi efni, verkfæri og vélar.
    • reikna vinnsluhraða.
    • öðlast innsýn í uppbyggingu, notkun og fyrirbyggjandi viðhald vökva‐, loft‐ og tölvustýrðra trésmíðavéla.
    • fara eftir öryggisreglum og nota öryggisbúnað við yfirborðsmeðferð.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    • setja upp verkfæri á tölvustýrðar trésmíðavélar.
    • umgangast tölvustýrðar vélar og þekkja öryggistriði þeirra.
    Símat.