Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist áframhaldandi almenna þekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í þrjá meginþætti: Flatarteikningu, fallmyndun og yfirborðsútflatninga og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist frekari færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, þjálfist í lestri og gerð vinnuteikninga, fríhendis rissteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum.
GRTE1GN04AB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi teikniaðferðum, s.s. útflatnings- og fríhendisteikningu ásamt fallmyndun.
frumformum og sneiðskorningum m.t.t. greiningar og myndunar raunstærða á línum og flötum.
gildi frumforma fyrir teikningu og mótun viðfangsefna.
upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum.
meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda.
tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum.
lestri fallmynda.
uppsetningu teikninga á vinnublað, áritun og frágangi þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna útflatninga af einföldum rúmmyndum.
lesa útflatnings- og hornréttar fallmyndir ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum.
teikna fríhendis vinnuteikningar með fallmyndun.
teikna einfaldar tvívíðar fríhendisteikningar.
teikna einfaldar útflatnings- og fallmyndir í tölvu.
teikna flatarfræðileg form og tvívíðar vinnufyrirmyndir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja vinnublað, árita og ganga frá tæknilegum teikningum.
miðla upplýsingum á skilvirkan hátt.
málsetja vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum.
efla formskyn sitt.
vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina s.s. hönnunar- og iðngreinar.