Í áfanganum læra nemendur grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta og fá þjálfun í að teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga. Fjallað er um muninn á aðal- og séruppdráttum, mælikvarða þeirra, tilgang og einkenni. Gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð, stöðlum, verklýsingum og lögð áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og tréefnum. Mikilvægt er að nemendur þjálfist í gerð rissteikninga við útfærslur deililausna og geri einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli verkupplýsinga
GRTE1GN04AB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og helstu útfærslum þeirra.
ákvæðum reglugerða um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga.
íslenskum stöðlum um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga.
stöðluðum málum á gluggum, hurðum, innréttingum og tréstigum.
öllum gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum.
fagheitum í glugga-, hurða -, innréttinga- og stigateikningum.
lestri byggingauppdrátta.
notkun byggingarreglugerðar.
notkun vinnuteikninga og verklýsinga.
blaðstærðum, mælikvörðum og teikniáhöldum.
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir verkstæðisunna byggingarhluta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera kostnaðarútreikninga og verklýsingar.
vinna eftir reglugerðum.
magntaka/vinna eftir teikningum og verklýsingum.
teikna vinnuteikningar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styðjast við Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga.
lesa og vinna með teikningar af verkstæðisunnum byggingarhlutum.
lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
gera einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga.
rissa og teikna einfalda glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga.
gera rissmyndir og eftir atvikum nota fjarvídd til að sýna rýmisútfærslur.
gera séruppdrætti og sýna deililausnir með tilheyrandi vikmálum.