Í þessum áfanga er fjallað um uppbyggingu á stærri húsveitum, raflagnir, lágspennu- og smáspennulagnir. Lögð er áhersla á lagnaefni, lagnaleiðir, aðal- og dreifitöflur, lýsingarkerfi, iðnaðartengla og tengikvíslar. Enn fremur boðskiptakerfi (loftnets-, dyrasíma- , síma- og tölvukerfi) í fjölbýlishúsum. Farið er í sérákvæði í reglugerðum varðandi raf- og smáspennulagnir. Gerð er aðaltafla fyrir iðnaðarveitu með straumspennamælingum, raf- og smáspennulögnum, lekastraumsvörn og spennujöfnun. Unnar eru tilkynninga- og mælingaskýrslur og gerðar efnis- og kostnaðaráætlanir.
RALV3RT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
öryggismælingum á iðnaðarveitu
reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
mismunandi lágspennu kerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja heimtaugar og mælitæki upp að 400 Amper
setja upp og tengja aðaltöflu upp að 400 Amper
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ákveða stærð aðaltöflu
mæla hringrásarviðnám, einangrunarviðnám og fasaröðun