Í þessum áfanga er fjallað um raforkukerfið á Íslandi, allt frá orkuverum til notenda, sögu raforkuvinnslu, dreifingar og áhrif raforkuvinnslu á menningu og umhverfi. Fjallað er um mismunandi orkugjafa svo sem vatnsorku, gufuorku, sólarorku, vindorku og fleira. Farið er í uppbyggingu orkuvera, tengi- og aðveitustöðva og helsta búnað í þeim. Enn fremur uppbyggingu háspennudreifikerfisins og helstu öryggisatriði varðandi vinnu við það. Þá er fjallað um spenna, yfirstraumsvarnir og virkni helstu varnarliða og tekin fyrir röð aðgerða fyrir rof og spennusetningu á línu eða öðrum rekstrareiningum. Lögð er áhersla á að nemendur fari í skoðunarferðir og kynnist mismunandi gerðum orkuvera. Í áfanganum er lögð áhersla á að skoða rafmengun og truflanir.
RAMV3RD05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu raforkukerfisins á Íslandi
uppbyggingu orkuvera, tengi- og aðveitustöðva
jarðskautum og hlutverki þeirra
öryggisatriðum varðandi vinnu við háspennuvirki
fjölbreyttum aðferðum við raforkuframleiðslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna út spennufall og afltöp háspennulína
mæla og greina truflanir í rafkerfum
skipuleggja aðgerðaröð fyrir rof og spennusetningu á línu eða öðrum rekstrareiningum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja og meta hinar ýmsu gerðir raforkuframleiðslu, þar með kosti og takmarkanir