Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509472761.15

    Tækjasmíði 1
    VGRT2GA03(AV)
    4
    Verktækni grunnnáms
    Verktækni grunnnáms
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    fv
    Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að smíða rafeindarásir með a.m.k. 10 íhlutum. Nemandinn les teikningu frá kennara, lærir um virkni og hlutverk íhluta, smíðar rásir og beitir mælitækjum til að kanna virkni rása og átta sig á hvaða afleiðingar það hefur ef einstaka íhlutir bila. Nemandinn fær leiðsögn við að framkvæma einfalda bilanaleit með notkun mælinga.
    VGRV1ML05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutfalli milli straums, spennu og viðnáms
    • breytingum sem verða á spennu ef viðnám breytist
    • hlutverki og virkni íhluta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lóða íhluti upp á prentplötu
    • Ohmmæla íhluti í rás með tilliti til annara íhluta
    • reikna afltöku rásarinnar
    • reikna strauma þar sem viðnám og spenna liggur fyrir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • teikna rafeindarás á blaði
    • skilja virkni einfaldra rafrása
    • spennumæla spennusettar rásir
    Námsmat fer fram í samræmi við skólanámsskrá FVA