Nemandinn kynnist vel starfi og starfssviði rafiðnaðarmannsins, öðlast skilning á eðlisfræðilegri hegðun rafmagns og fræðist um virkni ólíkra rofa með tengi- og smíðaverkefnum. Einnig kynnist hann því efni sem notast er við í einfaldar raflagnir. Nemandinn fær fræðslu um öryggismál og kynnist reglugerðum sem gilda fyrir fagið.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öryggismálum og reglugerðum er varða vinnu við rafmagn
verkfærum rafiðnarmannsins og helstu störfum
virkni mismunandi rofa
helstu teiknitáknum
litakóða víra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja rofa, samrofa, krónurofa og krossrofa
leggja kapallagnir fagmannlega á lítið spjald
leggja röralagnir fagmannlega á lítið spjald
tengja falir, klær og fjöltengi
beita réttum verkfærum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja muninn á hinum ýmsu efnum með tilliti til mismunandi aðstæðna
setja upp rofa með tilliti til aðstæðna
greina mun á faglegum og ófaglegum vinnubrögðum
gæta fyllsta öryggis í umgengni við rafmagn
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.