Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509552807.87

    Rafmagnsfræði 2
    RAMV2ÞS05(Fv)
    12
    Rafmagnsfræði
    riðstraumur, spólur, þéttar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FV
    Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemandinn nýti sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemandinn lærir hvað fasvik er og fær þjálfun í að reikna það, mæla og leiðrétta. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraumsrásum s.s. sveiflsjá og tíðnigjafa.
    RAMV1HL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli
    • helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi
    • teiknitáknum í span og rýmdar rásum
    • helstu reikningum í riðstraumsrásum
    • fasviki
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani
    • nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir
    • teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja upp einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar
    • reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum
    • tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum
    • skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.