Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509553348.49

    Rafeindatækni
    RTMV2DT03(fv)
    5
    rafeindatækni
    afriðun, díóður, hálfleiðarar, transistorar
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    FV
    Áfanginn fjallar um hálfleiðara. Þá sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Gert er ráð fyrir að nemendur læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
    Rafmagnsfræði 1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Teiknitáknum díóða og zenerdíóða
    • Virkni díóða, ljósdíóða og zenerdíóða
    • Helstu gerðum afriðla og virkni þeirra
    • Að velja íhluti eftir því sem verkefni krefst
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna einfaldar rásir með díóðum.
    • Reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum.
    • Teikna einfaldar rafeindarásir.
    • Notkun helstu mælitækja í rafeindatækni.
    • Notkun hermiforrits til mælinga á rafeindarásum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum, ljósdíóðum og zenerdíóðum
    • Gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum.
    • Geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
    • Geta framkvæmt mælingar á díóður til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.