Áfanginn er framhald af RATM2FV03 og fjallar um hálfleiðara. Farið er í algengasta gerðar af Jöfnun og reglun dc spenna í spennugjafir. Aðalviðfangsefni áfangans er grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- og ac reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemendur öðlast meiri þekking í notkun mælitæki við ac mælingar með fjölsviðs/- ac voltmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
RATM2FV03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu gerðum afriðla og virkni þeirra.
Virkni Bjt transistora sem dc og ac magnarar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Reikna út DC og gáruspennu á mismunandi afriðlunarrásum.
Reikna spennugjafir og grunnrásir rásir með transistorum.
Notkun helstu mælitækja sem notuð eru í rafeindatækni.
Nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum.
Gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum.
Geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
Geta framkvæmt mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.