Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509554596.81

    Tölvu og nettækni
    TNTÆ3GA05(fv)
    4
    Tölvu- og nettækni
    Tölvu- og nettækni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FV
    Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.
    TNTÆ2GE3
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • íhlutum tölvunetkerfa, skilji tilgang þeirra og virkni.
    • OSI og TCP/IP líkönunum.
    • IP vistföngum.
    • hugtökum og skammstöfunum sem notaðar eru í tölvunetkerfum.
    • nethögun (topology) tölvulagna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja.
    • meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli.
    • útbúa tölvustrengi og geta gæðamælt þá.
    • rekja bilanir í netsamböndum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi.
    • velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi.
    • setja upp og stillt meðalstórt tölvunetkerfi.
    • stilla beina (routers) með grunnstillingum.
    • geta fundið bilanir í tölvunetkerfi.
    • hafa yfir að ráða nægum orðaforða á efninu til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn.
    • getað notað áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.