Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509555597.11

    Raflagnateikning 1
    RLTK2RK05(AR)
    4
    Raflagnateikning
    Raflagnateikning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FV
    Megin áhersla áfangans felur í sér að nemendur tileinki sér teikningu raflagna og lestur teikninga. Þeir fá þjálfun í að teikna og lesa úr raflagnateikningum og lögð áhersla á lagnir að og með 100 Amper. Farið verður í staðalákvæði og öryggisþætti við frágang raflagnateikninga. Nemendur læra að rissa teikningu af raflögn. Þá er þeim kennt að gera magntöluskrá og meta kostnað við lagningu raflagna samkvæmt raflagnateikningu.
    Grunnnám rafiðna
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglum um blaðstærð fyrir teikningar, mælikvarða þeirra og teikniáhöld.
    • íslenskum staðli um raflagnateikningar fyrir smærri neysluveitur að og með 100A.
    • heitum og hugtökum raflagnateikninga.
    • magn- og kostnaðartöku raflagna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa úr raflagnateikningum.
    • nota hugtök og heiti sem þurfa við gerð raflagnateikninga.
    • nýta sér staðlaákvæði er lúta að hönnun raflagnateikninga.
    • teikningum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa allar nauðsynlegar upplýsingar úr raflagnateikningu svo leggja megi raflögn eftir þeim.
    • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í neysluveitum að og með 100A.
    • meta magn og kostnað við ofangreindar raflagnir.
    • framfylgja ákvæðum staðals við gerð raflagnateikninga.
    • rissa teikningu að smærri neysluveitu s.s. fyrir íbúð og sumarhús með teiknireglur og staðalákvæði að leiðarljósi.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.