Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig fjallar hann um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, svo sem brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Einnig er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á VHF- og UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara og gegnum gervihnetti. Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framgreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemendum og farið verður í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna.
Fjallað er um reglur um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir. Fjallað er um íhluti, eiginleika, hlutverk og notkunarsvið.
Grunndeild rafiðna
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu íhlutum loftnetskerfa og eiginleika þeirra.
Mismunandi aðferðum við teikningu og útfærslur, ásamt útreikningum á minni loftnetskerfum.
Uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna.
Hvaða reglur gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi.
Reglum og aðferðum sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa.
Helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Teikna og hanna loftnetskerfi, mæla minni fjarskiptakerfi.
Teikna og velja búnað í brunaviðvörunarkerfin.
Lesa úr uppdráttum af brunaviðvörunarkerfunum. Lesa úr mælingum bæði gæði og bilanir.
Velja búnað og strengi í eftirlits- og viðvörunarkerfin.
Velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi.
Lesa teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi.
Velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5).
Velja búnað í brunaviðvörunarkerfi.
Hanna minni brunaviðvörunarkerfi, gera úttektarskýrslur og beita reglum um sjálfvirk brunakerfi.
Beita reglum og stöðlum um neyðarlýsingar.
Færa inn breytingar á uppdrætti, sem gerðar eru á kerfunum.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.