Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu raforku og hvernig henni er dreift um sveitir og bæi, allt að neysluveitu notanda. Lögð er áhersla á öryggismál í tengslum við umgengni við rafmagn og hættur útskýrðar í máli og myndum. Nemandinn fær æfingu í að leggja lagnir í tiltekið lagnarými þar sem hann fylgir ákvæðum reglugerðar og stöðlum um raforkuvirki. Fjallað er enn frekar um raflagnaefni, efnisfræði rafbúnaðar og annan búnað í minni neysluveitum.
RALV1RÖ03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
raforkuframleiðslu og dreifikerfi
öryggis- og reglugerðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir
einföldum kapallögnum
einföldum röraraflögnum og ídrætti víra
helstu raflagnatáknum
algengustu heimilistækjum og orkuþörf þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja ýmsa rofa og búnað sem tengjast minni veitum
forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum
draga leiðara í rör
skipuleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum
tengja helstu rofa og tengla í minni veitum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sjá hættur sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri
skilja orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana
velja raflagnaefni í minni veitur
leggja raflagnir og tengja í minni veitur
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.