Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509612665.61

    Handavinna málmiðna 1
    HAMÁ1NH04
    5
    Handavinna málmiðna
    Notkun á handverkfærum
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Nemendur læra að kynnast notkun á helstu handverkfærum og einföldum rafmagnsverkfærum svo sem handborvélum og standborvélum. Þeir kynnast eðli mismunandi málma við smíðar á hverskyns íhlutum. Að áfanganum loknum geta nemendur smíðað einfalda hluti úr málmi. Einnig þekki þeir til notkunnar hand- og vélsögum og beitingum handverkfæra eins og hamra, meitla, lykla, tanga og annarra handverkfæra sem notað er í málmiðnaði. Einnig læra þeir að velja rétt mælitæki eftir eðli og stærð verkefnis.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meðferð og umhirðu verkfæra.
    • mælitækjum og uppmerkitækjum.
    • notkun slípibanda og smergelskífa.
    • öryggisreglum við borun, slípun og sögun.
    • almennum öryggisreglum á vinnusvæði.
    • mikilvægi þess að ganga þrifalega um vinnusvæði sitt.
    • mikilvægi þess að ganga á réttan hátt frá spilliefnum, t.d. olíu og olíublautum pappír.
    • mikilvægi góðrar loftræstingar.
    • undirstöðuatriðum heilsuverndar.
    • réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíða hluti úr mismunandi málmum.
    • lesa af teikningum.
    • beita mælitækjum og uppmerkitækjum.
    • velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum.
    • velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á.
    • velja réttar þjalir fyrir efni og áferð.
    • beita helstu hjálpartækjum, t.d. rissnál,vinkli,hæðarrissi og hringfara við uppmerkingu á efni fyrir vinnslu.
    • velja snúnings- og færsluhraða sem hentar efni.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • ákveða rétta vinnsluaðferð sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • beita snitti til skrúfugerðar sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • gera sjálfstætt mat að loknu verkefni sem metið er með skýrslum sem gerðar eru um verklegar æfingar.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.