Nemendur læri að umgangast gashylki, logsuðu og logskurðatæki. Þeir læri að fylgja suðulýsingu og sjóða plötur í suðustöðunum PA, PG og PF með I-rauf. Þeir geti lóðað, logskorið og þekki helstu öryggisatriði og geti brugðist við ef hætta skapast.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gashylkjum út frá þrýstingi, lit, lokum og öryggisatriðum
eiginleikum asetýlens og súrefnis
suðuloga, blöndun, hitastigi og þrýstingi
áhrifum kolandi-, súrefnisríkum- og hlutlausum loga á suðupolli
mismunandi raufum í samsetningu
virkni lóða og lóðdufts
af hverju ekki er hægt að skera alla málma
stöðlunum ÍST EN 287-1 og ÍST EN 25 817
öryggismálum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
umgangast suðutæki
fara eftir öryggisreglum
sjóða plötustál 0,8 til 3mm með I- rauf í PA, PF og PG
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp mæla á hylki, slöngur og sköft
leita leka
velja rétta spíssa og vinnuþrýsting eftir efnisþykktum
nota suðulóð og lóðduft
logskera stál fríhendis
gera sjónmat samkvæmt ÍST EN 25 817
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.