Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509613145.46

    Rafsuða
    MLSU1RS03
    8
    Málmsuða
    Rafsuða
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Nemendur kunni skil á suðuaðferðum, efni og suðuvírum. Þeir geti metið suðuferlið og öryggisatriði. Soðin verður plötusuða í suðustöðunum PA, PB, PD, PF og PG með pinnasuðu samkvæmt ÍST EN 287-1. Nemandinn læri að skrá grunnatriði suðuferilslýsinga. Færni miðast við C flokk ÍST EN 25 817 um kverksuðu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • suðu með rið og jafnstraum
    • suðu með plús- og mínuspól
    • suðuaðferðum, afköstum og hagkvæmni
    • mismunandi aðferðum og hættu á suðugöllum
    • ljósboga- tómgangsspennu
    • stöðlum um suður, galla, suðustöðum, hæfnisvottun suðumanna, merkingu rafsuðuvíra ÍST EN 22 553 staðli um merkingar stáls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með suðubúnað
    • stilla suðuvélar
    • sjóða saman hluti í ýmsum stöðum
    • •sjóða mismunandi a-mál
    • sjóða samkvæmt suðuferli
    • sjóða í suðustöðum PA, PB og PF
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja hagkvæma suðuaðferð við mismunandi verk
    • útskýra staðlaðar merkingar pinnasuðuvíra
    • meta algengustu suðugalla og ástæður þeirra
    • meta suður út frá stöðluðum kröfum um útlit
    • flokka suður í gæðaflokka
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.