Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509648294.75

    Starfsþjálfun á vinnustað
    STAÞ3HU30
    43
    Starfsþjálfun
    Stafsþjálfun á vinnustað I
    Samþykkt af skóla
    3
    30
    Í þessum áfanga fara nemendur í starfsþjálfun á vinnustað og er nemandinn á einum eða fleiri vinnustöðum í þessari starfsþjálfun. Nemandinn á að vinna við sem fjölbreyttasta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem meistari og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Skólinn hefur eftirlit og umsjón með starfsþjálfun nemanda hverju sinni og staðfestir starfsþjálfun nemanda með undirskrift sinni í ferilbók nemanda. Lengd starfsþjálfunar er 18 vikur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • takast á við frekara nám innan bygginga‐ og mannvirkjagreina hvort heldur er í skóla eða sem nemi á vinnustað
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og greina einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn beita algengustu áhöldum og tækjum innan atvinnugreinarinnar
    • fara vel með tæki og tól og nýta vel efni sem unnið er með
    • gæta öryggis síns í og á vinnustað
    • ganga fagmannlega frá á vinnustað fara eftir leiðbeiningum kennara og verkstjóra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sinna störfum og starfsumhverfi innan bygginga‐ og mannvirkjaiðnaðar
    • kunna skil á ýmsum námsleiðum að loknu námi
    • nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
    • þekkja skil á helstu efnum sem unnið er með í bygginga‐ og mannvirkjaiðnaði
    • fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað og mikilvægi heilsuverndar mikilvægi umhverfisverndar í atvinnugreininni
    • skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
    • sinna borgaralegum réttindum sínum og skyldum
    • kunna skil á skipulagi íslensks samfélags og vinnumarkaðar
    Námsmat er sameiginlegt með kennara skóla og fulltrúa fyrirtækis og skal vera í formi leiðsagnarmats. Einkunn nemanda skal vera þannig háttað að áfangi er staðinn eða ekki staðinn og niðurstöður námsmats fært inn í ferilbók.