Nemandinn kynnist grunnatriðum í byggingaeðlisfræði svo sem kröfum til bygginga, innri og ytri kröftum burðarvirkis og mismunandi álagi á byggingahluta. Fjallað er um ýmsa almenna þætti hita-, hljóð- og rakaeinangrunar og brunatæknilegar útfærslur í byggingahlutum. Nemandinn lærir um loftræstar útveggjaklæðningar og mismunandi einangrunarkröfur byggingahluta. Fjallað er um eiginleika einstakra grindar- og klæðningaefna, gerð og þéttleika festinga, einangrun og afréttingu vegggrinda. Kennslan er fyrst og fremst bókleg þar sem lögð er áhersla á að tengja saman fræðilega umfjöllun, einstakar útfærslur og vinnubrögð með heimsóknum, sýnikennslu og eftir atvikum smærri verkefnum.
TRÉS2PH10 og TRÉS2NT04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
burðarvirki timburhúsa
margskonar álagi sem byggingar verða fyrir
klæðningum veggja og þaka
mikilvægi loftræstingu byggingarhluta
einangrun byggingarhluta
rakavarnarlagi og mikilvægi þess
varmaleiðni byggingarefna
hljóðvist byggingarhluta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja efni í burðarvirki timburhúsa samkvæmt styrktarflokkum
velja klæðningarefni með tilliti til mismunandi aðstæðna og húsagerða
velja smíðafestingar samkvæmt verklýsingu
vinna með einangrun og rakavörn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
smíða burðarvirki timburhúsa
klæða útveggi, gólf og þök
einangra byggingahluta
fjalla um mismunandi gerðir timburklæðninga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.