Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509720745.64

    Aðferðafræði matreiðslu
    AFMA1HR04
    2
    aðferðafræði í matreiðslu
    hráefniskostnaður, rýrnun
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í áfanganum fást nemendur við að reikna út hráefniskostnað, rýrnun hráefnis, áætla magn og sjá um innkaup fyrir tiltekin verkefni. Forgangsraða verkþáttum og skipuleggja vinnuferla með tilliti til fyrirliggjandi verkefna. Nemendur læra um undirstöðu matreiðsluaðferðir, velja viðeigandi matreiðsluaðferð fyrir tiltekið hráefni og færa rök fyrir vali sínu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • útreikningi á hráefniskostnaði, rýrnun hráefnis, áætlun um magn og innkaup
    • skipulagi og forgangsröðun verkþátta
    • undirstöðu matreiðsluaðferðum og beitingu þeirra
    • sígildum réttum og geta sett þá í samhengi við nútíma framsetningu og lýðheilsu
    • áherslum sem gilda um alþjóðlega matargerð og aðferðafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna út hráefniskostnað, rýrnun, áætla magn og annast um innkaup
    • forgangsraða verkefnum og sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnu sinni
    • lesa texta sem inniheldur faglegar upplýsingar, vinna úr þeim með mismunandi hætti
    • kynna niðurstöður sínar af umburðalyndi og skilningi á viðhorfum annarra
    • skrifa stuttan texta um faglegt efni og færa rök fyrir máli sínu bæði munnlega og skriflega
    • afla faglegra upplýsinga og greina á milli áreiðanleika þeirra og fræðilegs gildis
    • nota heimilidir sem skýra eigin röksemdafærslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • reikna og áætla hráefni og magn fyrir tiltekið verkefni
    • skipuleggja og forgangsraða verkþáttum á skilvirkan hátt
    • tengja saman hráefni, framsetningu og sígildar matreiðsluaðferðir
    • meta eigin verk og annarra út frá skilgreindum forsendum fyrirliggjandi verkefna
    • útfæra nýjar hugmyndir sem byggjast á sígildri matreiðslu
    • tjá sig á skapandi og ábyrgan hátt um fagleg málefni og rökstyðja niðurstöður sínar
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.