Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509722687.9

    Matreiðsla grunnur
    MATR1MG10
    17
    matreiðsla
    MATR
    Samþykkt af skóla
    1
    10
    Í áfanganum er farið í notkun á helstu tækjum í eldhúsi, hnífum og smááhöldum. Farið yfir allar helstu matreiðsluaðferðir og algengasta hráefni til matargerðar með áherslu á íslenska matargerð. Lögð er áhersla á undirstöðuaðferðir s.s. skurð og meðferð á grænmeti, ávöxtum, fiski og kjöti. Farið er í soð-, súpu- og sósugerð. Unnið er með morgunverð, algenga hádegis- og kvöldverðarétti og eftirrétti. Áhersla er á fæðutengdar ráðleggingar Embættis Landlæknis um hollari matargerð. Unnið er eftir gæðastöðlum um innra eftirlit, HACCP.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öllum grunnsoðum, hér átt við: Skelfisks- og fisksoð, brún og ljós kjötsoð
    • öllum klassískum súpuflokkum, hér er átt við: Tærar súpur, vélotésúpur, rjómasúpur, mauksúpur, sértækar súpur og þjóðarsúpur
    • notkun á grænmeti, grjónum, pasta og kornmeti sem meðlæti og sem hluta af heilstæðri máltíð
    • notkun á íslenskum bolfiski, flatfiski, skelfiski og íslenskum og erlendum sláturafurðum og villibráð sem hluta af heilstæðri máltíð
    • klassískum eftirréttum; heitum, köldum og frosnum
    • ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit: HACCP
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja sérhæfða verkferla í samræmi við fyrirliggjandi verkefni
    • setja saman og matreiða öll grunnsoð, grunnsúpur og afleiddar súpur
    • reiða fram allar helstu grunn- og afleiddar sósur
    • matreiða einfalda grænmetis-, grjóna- og pastarétti
    • undirbúa og matreiða alla helstu klassíska hádegisverðarrétti og nota til þess algengar íslenskar sjávarafurðir og sláturafurðir
    • matreiða helstu íslenska þjóðarrétti
    • setja saman helstu eftirrétti
    • reikna út næringargildi og áætla skammtastærðir
    • matreiða samkvæmt fæðutengdum ráðleggingum Embættis landlæknis
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis með áherslu á fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis
    • geta skipulagt verkferla og verkefnalista og unnið eftir þeim í matreiðslu á almennu fæði
    • meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
    • sýna fram á ábyrgð í umgengni í kennslurýmum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.