Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemendur læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gerðar prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemendur eiga að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.
Grunnskóli með einkunnina C að jafnaði nema í stærðfræði þar sem einkunninnar B er krafist.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum s.s. straum, spennu, viðnámi.
teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma.
helstu lögmálum s.s. Ohms- Kirkhhoffs- og afllögmáli.
helstu forskeytum eininga s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma reikninga í einföldum jafnstraums rásum.
teikna einfaldar jafnstraumsrásir.
nota fjölsviðsmæli.
Tengja einfaldar jafnstraumsrásir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma á þeim mælingar.
reikna einfaldar jafnstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælingum.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.