Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu-/straumgilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í útreikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læra hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflusjár og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.
RAFM1GA05AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli.
helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi.
teiknitáknum í span- og rýmdarrásum.
helstu reikningum í riðstraumsrásum.
fasviki.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani.
nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir.
teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar.
reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum.
tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits.
skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.