Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509974560.77

    Rafmagnsfræði 3
    RAFM2GA05(CR)
    4
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Almenn rafmagnsfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    CR
    Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í útreikningum á RLC-rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Læri um desíbelútreikninga og notkun þeirra. Læri um helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma útreikninga á þeim. Auk þess skulu nemendur kynnast umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemendur framkvæma einnig mælingar á síum og öðrum RLC rásum bæði með hjálp mælitækja og hermiforrits.
    RAFM2GA05BR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegðar sér við breytilega tíðni.
    • virkni helstu sía.
    • virkni umhverfisháðra viðnáma.
    • desíbelútreikningum og lógaritmískum kvarða.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC-rásum.
    • segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni.
    • tengja og mæla í RLC-rásum.
    • reikna/hanna einfaldar síur.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja eftir teikningu og mæla í RLC-rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum.
    • hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar.
    • gera mælingar á RLC- rásum yfir ákveðið tíðnisvið og geta sett niðurstöður fram í desíbelum og í lógaritmískum kvarða.
    • nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum.
    • geta sett niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi.
    Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.