Í áfanganum fer fram kynning á loftstýringum, helstu loftmeðhöndlunartækjum og virkni þeirra. Fjallað er um nokkrar gerðir af loftstýrieiningum, svo sem loka og strokka og helstu tákn og tengimyndir sem notaðar eru í loftstýringum. Nemendur þjálfast í teikningum og tengingum á einföldum loftstýringum. Haldið er áfram með segulliðastýringar þar sem frá var horfið í fyrri áfanga en nú með tengingum við loftstýringar. Nemendur hanna og tengja loftstýribúnað sem stjórnað er af segulliðastýringum. Eins og í fyrri áfanga er áhersla lögð á verkefnavinnu og verklegar æfingar sem felast í að brjóta efni áfangans til mergjar, tengja, prófa, mæla og taka saman niðurstöður.
STÝT1GA04AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu kostum og göllum við loftstýringar.
virkni og notkun á loftpressum, loftsíum, smurtækjum, lofthylkjum og öryggislokum.
virkni og notkun á einvirkum og tvívirkum strokk.
virkni og notkun á 2/2-, 3/2- og 5/2-lokum sem stýrt er handvirkt, með rafmagni, með lofti og vélrænt.
virkni og notkun á deyfistefnu-, tvíþrýsti- og einstefnulokum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna virkni- og tengimyndir og tengja eftir teikningum.
tengja segulliða- og loftstýringar saman.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma bilanaleit í loftstýringum.
skilja upplýsingar af skiltum rafmótora.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati séu að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.