Í áfanganum kynnast nemendur skynjaratækni, iðntölvum og loftstýringum. Þeir kynnast nokkrum gerðum af iðntölvum og notkun þeirra í iðnstýringum sem og tengingu þeirra við ýmsan jaðarbúnað. Megináhersla er lögð á að nemendur læri að skilja virkni og uppbyggingu iðntölva og fái undirstöðuþjálfun í forritun og notkun forritunartækja og forritunarhugbúnaðar fyrir smærri iðntölvur. Kynning er á loftstýringum og helstu einingum þeirra. Þá er lögð áhersla á að þeir læri gerð flæðimynda fyrir stýringar, fái æfingu í gerð teikninga af iðntölvum og tengimynda fyrir þær sem og þann búnað sem þeim tengist. Auk þessa fer fram verkefnavinna og verklegar æfingar þar sem nemendur brjóta viðfangsefni áfangans til mergjar, tengja, prófa, mæla og taka saman niðurstöður. Lögð er áhersla á notkun mælitækja til að finna tengivillur og bilanir.
STÝT2GA04BR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skynjaratækni með áherslu á virkni rýmdar-, span-, hita-, hæðar- og þrýstiskynjara.
helstu gerðum iðntölva, notkun þeirra í iðnstýringum og tengingu þeirra við ýmsan jaðarbúnað.
gerð flæðimynda fyrir stýringar.
IEC 1131-staðlinum sem gildir fyrir forritun á iðntölvum.
forritunartækjum og -hugbúnaði.
helstu grunnskipunum í ladder-forritun.
virkni og notkun á loftpressum, loftsíum, smurtækjum, lofthylkjum og öryggislokum sem og einvirkum / tvívirkum strokk.
virkni og notkun á deyfistefnu-, tvíþrýsti- og einstefnulokum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota spennugjafa, grunneiningar, stafrænar inn- og útgangseiningar.
umrita segulliðastýringar yfir í ladder-forrit.
teikna tengimyndir af iðntölvum og þeim búnaði sem tengist þeim.
teikna virkni- og tengimyndir og tengja eftir teikningum.
• tengja saman segulliða- og loftstýringar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma bilanaleit í segulliðastýringum og iðntölvustýringum.
tengja iðntölvur og búnað sem tengist þeim á inn- og útgöngum.
tengja stýri- og kraftrásir skammhlaups-mótora.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.