Nemendur kynnast aðferðum sem beitt er til að smíða hluti samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél. Þeir kynnast og verða færir um að beita ISO kóða og G kóða. Teikniforrit til að búa til vinnslustykki er kynnt (CAD - Computer Aided Design) og sömuleiðis vélaforrit til að forrita ferla og aðgerðir til vinnslu smíðahluta (CAM – Computer Aided Manufacturing).
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum og virkni forrita tölvustýrðra iðnaðarvéla.
mælieiningum í teikniforritum.
notkunarmöguleikum CAD-CAM tækni.
hvernig verkfæri eru valin.
hlutverkum og virkni x, y og z ása.
uppbyggingu og virkni tækjanna.
teikningartáknum þeirra íhluta sem um er fjallað.
öryggisatriðum og öryggisstöðlum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með teikningar og undirbúa fyrir vinnslu í tölvustýrðum iðnvélum.
áætla efnismagn.
skipuleggja og velja verkfæri fyrir mismunandi CNC-skipanir.
leysa verkefni fyrir þriggja ása CNC-stýrða rennibekki og fræsivélar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita CAD og CAM forritum á öruggan og árangursríkan hátt.
afla upplýsinga og gagna um vinnslu og skipulag verka fyrir CNC-stýrðar vélar.
mæla upp hlut, teikna í Inventor og forrita í CAM.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.