Í áfanganum þjálfast nemendur í notkun sannleikstaflna. Læra að nota bólska algebru og Karnaugh-kort til þess að hanna og einfalda rökrásir. Þeir kynnast samrásum og virkni þeirra sbr.: samlagningarrás (Adder), samanburðarrás (Comparator), línufækkari/fjölgari (Mux/Demux), kóðabreytir (Decoder), línuveljari (Encoder). Hermiforrit eru notuð við prófun rása. Lögð er áhersla á að nemendur geti hannað rásir annað hvort fyrir prentplötu eða á brauðbretti, komið fyrir íhlutum og prófað, einnig að nemendur fái innsýn í forritanlega örgjörva og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d í skynjararásum.
TNTÆ1GA04AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun bólskrar algebru og Karnaugh-korta til einföldunar á rökrásum.
virkni helstu samrása.
aðferðum og tækni við að forrita örgjörva.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota bólska algebru og Karnaug-kort til að einfalda rökrásir.
tengja samrásir í hermiforritum og brauðbrettum til að prófa.
smíða/tengja, prentrásir/brauðbretti fyrir samrásir eða smátölvur.
forrita litla örgjörva/smátölvur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita mælitækjum við að prófa samrásir.
beita tölvuhermiforritum til prófunar á rökrásum og samrásum.
hanna rásir fyrir prentrásir eða brauðbretti.
forrita örgjörva/smátölvu eftir ákveðinni forskrift.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati séu að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.