Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.
TNTÆ2GA04CR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íhlutum tölvunetkerfa, tilgangi þeirra og virkni.
OSI og TCP/IP líkönum.
IP vistföngum.
hugtökum og skammstöfunum sem notuð eru í tölvunetkerfum.
nethögun (topology) tölvulagna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja.
meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli.
útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá.
rekja bilanir í netsamböndum.
setja upp og tengja lítið net með einum netþjóni (ekki peer to peer) og setja upp samband yfir router út á internetið.
nýta sér Network Analyzer við bilanagreiningu á netum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi.
velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi.
setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi.
stilla beina (routers) með grunnstillingum.
finna bilanir í tölvunetkerfi.
hafa yfir að ráða nægum orðaforða á efninu til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn.
nota áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati séu að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.